Hreinsun rotþróa
Hreinsunarsvæði
Svæðinu er skipt upp í þrjú litasvæði. Innan hver svæðis eru rotþrær sumarhúsa losaðar á fimm ára fresti, íbúðarhúsa og annara á þriggja ára fresti.
Hvenær var hreinsað!
Hér er hægt að sjá yfilit yfir hvenær rotþróin hjá þér var síðast heimsótt.
Minni fráveitur
Leiðbeiningar varðandi kröfur til hreinsunar og staðsetningar á hreinsivirki.
Hreinsunaferli
Við hreinsun á rotþróm er innihaldi rotþróa dælt upp í hreinsunarbíl. Þar er vatnið aðskilið frá fasta efninu og vatninu svo dælt aftur í rotþrónna. Fastaefnið er svo keyrt á Seyrustaði til vinnslu. Að lokum er seyran svo notuð til uppgræðslu á Hrunamannaafrétti.
Hafa ber í huga:
- Rotþrær verða að vera aðgengilegar fyrir hreinsunaraðila.
- Passa þarf að bíll komist nógu nálægt þrónni til að hægt sé að hreinsa.
- Nauðsynlegt er að ekki sé lengra að þró en 50 m frá þeim stað sem bílinn getur stoppað.
- Ef það er mikill gróður þá þarf að grisja leið að þrónni og merkja leiðina.
- Nauðsynlegt er að merkja staðsetningu þróar með stöng eða flaggi. Gott er að vera búin að reita gróður frá stútum ef þarf.
- Til að hægt sé að hreinsa rotþrónna þarf stúturinn á rotþrónni að vera að lágmarki 110 mm til að barkinn á bílnum komist niður í þrónna.
- Gæta þarf þess að hreinsunaraðili komi ekki að lokuðu hliði og að hliðið sé nógu stórt til að stór bíll komist í gegnum það.
- Gæta þarf að því að trjágreinar slúti ekki yfir heimreið svo að seyrubíllinn komist í gegn að rotþró.
- Vinsamlega athugið að hvorki er hægt að segja til um hvenær hreinsunaraðili tæmir né óska eftir ákveðnum hreinsunartíma.
Er eitthvað að rotþrónni þinni?
Ef þér finnst eitthvað að rotþrónni eða þú heldur að hún sé full eða stífluð þá skaltu athuga eftirfarandi.
Hvenær var síðast hreinsað?
Hægt er að sjá hvenær rotþróin hjá þér var síðast heimsótt með því að fara inn á http://www.map.is/sudurland/ skrifa heimilisfang eignar í gluggann uppi í vinstra horninu þar sem stendur; “Finna/Search“. Síðan þarf að haka við fráveita, sem er undir Veitur (ýta á plúsinn fyrir aftan Veitur) í valglugga hægra megin. Þá kemur upp punktur þar sem rotþróin er staðsett og ef ýtt er á punktinn þá koma upp upplýsingar um númer rotþróar og hvenær hún var síðast hreinsuð.
Ef það er minna en fimm ár síðan að rotþróin var hreinsuð þá er haft samband við fagaðila (pípara) til að greina vandann.
Hér koma nokkur atriði sem gætu mögulega verið að:
Er langt síðan þú varst í bústaðnum?
Ef langt er síðan að bústaðurinn var notaður, þá getur myndast skán efst og þá er hægt að fara með prik og pota ofan í rotþrónna og þá losnar um. (eigendur geti gert þetta sjálfir)
Í hvernig jarðveg er rotþróin staðsett?
Siturbeðið er orðið stíflað og það rennur ekki frá þrónni. (Eign hugsanlega staðsett í mýrlendi og það nær ekki að drena í jarðveginn)
Hefur rotþróin sigið?
Rotþróin getur missigið og hallar að stút inn í þróna.
Er rotþróin of lítil?
Rotþróin er of lítil miðað við þá umgengni/starfsemi sem er í bústaðnum. (Persónueiningar)
Allt er í lagi!
Ef fagaðili staðfestir að ekkert sé að rotþró og það þurfi eingöngu að hreinsa hana sendið þá póst með staðfestingu fagaðila á seyra@seyra.is og óskið eftir aukahreinsun. Vinsamlega tilgreinið heimilisfang eignar og erindi.
Minni fráveitur
Leiðbeiningar við hreinsun skólps fyrir 50 persónueiningar eða minna frá venjulegu húshaldi/gististöðum (ekki iðnaðarskólp). Þeim er ætlað að leiðbeina einstaklingum,
hönnuðum, rekstraraðilum og heilbrigðiseftirlitum um þessar lausnir og fyrirkomulag varðandi kröfur til hreinsunar og staðsetningar á hreinsivirki.