Um verkefnið
Nánar um seyruverkefnið, samstarfsaðila og hagnýta hluti.

Seyruverkefnið
Sveitarfélögin Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur standa að seyruverkefninu. Verkefnið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna, Landgræðslunnar og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og reka sveitarfélögin móttökustöð fyrir seyru á Flúðum og annast hreinsun rotþróa í sveitarfélögunum.
Verkefnið felst í því að sveitarfélögin sjá um að hreinsun rotþróa, hverja rotþró þarf að hreinsa á þriggja ára fresti. Seyrunni er safnað af seyrubíl sem síðan sturtar henni í kalkara þar sem henni er blandað saman við kalk og stundum einnig grasfræ. Þegar seyran hefur verið kölkuð er henni dreift á sérstakt dreifingarsvæði þar sem hún er notuð í uppgræðslu.
Samþykktir um fráveitu
Samkvæmt lögum um fráveitur nr. 9/2009 skulu öll sveitafélög setja sér samþykkt um fráveitu.
Þær má sjá hér:
Gjaldskrá
Vegna móttöku og hreinsunnar á seyru.