Um verkefnið

Nánar um seyruverkefnið, samstarfsaðila og hagnýta hluti.

Seyruverkefnið

Sveitarfélögin Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og  Gnúpverjahreppur standa að seyruverkefninu. Verkefnið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna, Landgræðslunnar og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og reka sveitarfélögin móttökustöð fyrir seyru á Flúðum og annast hreinsun rotþróa í sveitarfélögunum. Seyruverkefnið eru rekið undir byggðasamlaginu Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs. (UTU). UTU sér um að halda utan um seyruverkefnið, móttöku á seyru, annast hreinsun á rotþróm og rekstur verkefnisins.

Verkefnið felst í því að UTU sér um að hreinsun rotþróa. Seyrunni er safnað af seyrubíl sem síðan sturtar henni í kalkara þar sem henni er blandað saman við kalk og stundum einnig grasfræ. Þegar seyran hefur verið kölkuð er henni dreift á sérstakt dreifingarsvæði þar sem hún er notuð í uppgræðslu.